23mars

I am back.....................

Langt er síðan síðast!  Blogg er hafið á ný.
Mættur er eg á ný, eftir að hafa farið norður síðustu fjórar helgar.
Húsið sem eg gerði upp að hluta, bara hreinlega faðmaði mig.  Hreinlega eins og að vera kominn heim eftir vosbúð og vonda dvöl í annari veröld.
Skagafjörðurinn er staðurinn!!!!!!!!

Það er verið að setja upp leikrit í skagaleikflokknum sem eg ráðlegg öllum að sjá. Og er þetta stykki fullt af hæfileikaríku fólki sem æfir flest kvöld.

Hef verið að rífa niður gamla rekka uppi á gamla lager í álverinu til að hægt sé að setja upp þvottastöð fyrir álverið.  Halló, þið sem vinnið þarna, þið farið að sjá út um rúðurnar á þeim tækjum er þið vinnið á!!!!!!!! Bravó.
Ég er ekki að setja út á ykkur er vinnið þarna, en vonandi finnið þið muninn!!
Frétti að einhver stórkarl væri að koma í heimsókn, það var verið að sópa og hreinsa allt þarna í álverinu? Það er víst hægt að sópa þó að enginn sé að koma í heimsókn!!!

Það komu upp veikindi hjá okkur og henni frænku minni og þá var enginn til að bera út blöðin, halló, vantar engann morgun hreyfingu á kaupi????
Ég hélt að flesta unglinga vantaði smá aukapening?
Ekki eru allir vasar hjá pöbbum og mömmum svo fullir af peningum að ekki megi við bæta, allavegana vantar mig svoleiðis foreldra!!!!

Kveð að sinni.
23. mars 2007 klukkan 21:35
Sámur
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Atburđarteljari

Gagnasafn