ok, ótrúlegt..........
Þessar sprautur sem ég fékk eru magnaðar, sef minna og svo er ég farinn að hreyfa vöðva sem ég vissi bara ekki að væri hægt að hreyfa!!!!Ég mátti fara að reyna á mig í dag, en bara lítið. Þannig að ég er farinn að ganga uppréttur að nýju, húrra!!
Má samt ekki fara að vinna fyrr en á mánudag.
Þessa dagana dreymir mig um að láta gamla drauminn rætast, opinberast síðar, ég hugsa um þetta allan daginn. Já, það gæti margt breyst, mörgum til hagsbóta og ánægju.
Er maður einhvern tímann búinn að ákveða hvað maður vill verða, þegar maður verður stór og hvenær verður maður stór? 15 ára? 25ára Eða 35ára?
Er ekki málið að þroskast með lífinu og vera happy?
Allir eru að elta drauma sína, Davíð og Björn Bjarnason eru að reyna að knésetja Baug Group, reyndar nota þeir okkar peninga í það.
Þetta þráhyggju eineltismál þeirra fer í taugarnar á mér, þessir hundruðir af milljónum sem fara í þetta mál, eru drjúgur vegaspotti, til heilbrigðismála, til bygginga öldrunarheimila svo gömul hjón geti eytt ævikvöldinu saman og svo má lengi telja.
Ætla að ergja mig á amstri dagsins og gef svo skýrslu síðar, kveðja, Sámur
15. febrúar 2007 klukkan 07:20
Sámur
Sámur