23mars

I am back.....................

Langt er síðan síðast!  Blogg er hafið á ný.
Mættur er eg á ný, eftir að hafa farið norður síðustu fjórar helgar.
Húsið sem eg gerði upp að hluta, bara hreinlega faðmaði mig.  Hreinlega eins og að vera kominn heim eftir vosbúð og vonda dvöl í annari veröld.
Skagafjörðurinn er staðurinn!!!!!!!!

Það er verið að setja upp leikrit í skagaleikflokknum sem eg ráðlegg öllum að sjá. Og er þetta stykki fullt af hæfileikaríku fólki sem æfir flest kvöld.

Hef verið að rífa niður gamla rekka uppi á gamla lager í álverinu til að hægt sé að setja upp þvottastöð fyrir álverið.  Halló, þið sem vinnið þarna, þið farið að sjá út um rúðurnar á þeim tækjum er þið vinnið á!!!!!!!! Bravó.
Ég er ekki að setja út á ykkur er vinnið þarna, en vonandi finnið þið muninn!!
Frétti að einhver stórkarl væri að koma í heimsókn, það var verið að sópa og hreinsa allt þarna í álverinu? Það er víst hægt að sópa þó að enginn sé að koma í heimsókn!!!

Það komu upp veikindi hjá okkur og henni frænku minni og þá var enginn til að bera út blöðin, halló, vantar engann morgun hreyfingu á kaupi????
Ég hélt að flesta unglinga vantaði smá aukapening?
Ekki eru allir vasar hjá pöbbum og mömmum svo fullir af peningum að ekki megi við bæta, allavegana vantar mig svoleiðis foreldra!!!!

Kveð að sinni.
23. mars 2007 klukkan 21:35
Sámur
1 athugasemd
26febrúar

er það nú .................

Þetta er nú hætt að vera fyndið......! Á föstudaginn bilaði Ístaks bíllinn sem ég sé um!  Nema hvað, fékk í staðinn þennan fína bíl, með bilaða miðstöð og ljóslaust mælaborð!!!
Ekki alveg búið enn, fékk einn bílinn enn og hann er bilaður við bílaverkstæði Hjalta.

Haf þolinmæði við mig hvað sem ég hef gert. Ég er bara breyskur og auðmjúkur maður á þinni jörð!!

Er með verkefni inni í álveri, í ryki og skít. ég veit bara það, krakkar mínir ekki týnast þarna inni!  Vinir mínir farið í skóla. Þetta er allt í lagi í stuttan tíma en ekki gleymast í rykinu!!

Þakka
26. febrúar 2007 klukkan 22:23
Sámur
3 athugasemdir
20febrúar

Halló again............?

Undarlegt, er búinn að svindla á blogginu síðan þann 16.  Skamm skamm..!!

Skrapp á mörkina, bara að kíkja, en hröklaðist út aftur.  Greynilega er góð stuð tónlist á hröðu undanhaldi fyrir síbylju og
etöfluóhroða í formi einhverskonar tónlistar.

Ég óttast um staðinn og að ég eigi ekki erindi þangað, því þetta er ekki í fyrsta skipti sem við förum heim snemma......
20. febrúar 2007 klukkan 20:38
Sámur
3 athugasemdir
16febrúar

regnið...........

Eru engin takmörk fyrir leyfilegri ofankomu á klukkutíma?  Það er búið að rigna ótrúlega síðan síðan klukkan 6.  Það var ekki hundi út sigandi, en við fórum samt!
Var að bera út blöðin og var að ganga upp kirkjubrautina, þá opnuðust aðaldyrnar á OZONE, en enginn var inni og enginn nálægur.  Datt mér í hug að þarna væri tækifærið til að ná sér í ódýran alklæðnað, því útsölurnar eru jú búnar.

Svo ég hringdi bara í lögguna, ekki til að láta handtaka mig, heldur til að tryggja öryggi búðareiganda!!!!

Er að verða skárri, fer að vinna á mánudag.
16. febrúar 2007 klukkan 07:29
Sámur
1 athugasemd
15febrúar

ok, ótrúlegt..........

Þessar sprautur sem ég fékk eru magnaðar, sef minna og svo er ég farinn að hreyfa  vöðva sem ég vissi bara ekki að væri hægt að hreyfa!!!!
Ég mátti fara að reyna á mig í dag, en bara lítið.  Þannig að ég er farinn að ganga uppréttur að nýju, húrra!!

Má samt ekki fara að vinna fyrr en á mánudag.

Þessa dagana dreymir mig um að láta gamla drauminn rætast, opinberast síðar, ég hugsa um þetta allan daginn. Já, það gæti margt breyst, mörgum til hagsbóta og ánægju.

Er maður einhvern tímann búinn að ákveða hvað maður vill verða, þegar maður verður stór og hvenær verður maður stór?  15 ára?  25ára Eða 35ára?
Er ekki málið að þroskast með lífinu og vera happy?

Allir eru að elta drauma sína, Davíð og Björn Bjarnason eru að reyna að knésetja Baug Group, reyndar nota þeir okkar peninga í það.
Þetta þráhyggju eineltismál þeirra fer í taugarnar á mér, þessir hundruðir af milljónum sem fara í þetta mál, eru drjúgur vegaspotti, til heilbrigðismála, til bygginga öldrunarheimila svo gömul hjón geti eytt ævikvöldinu saman og svo má lengi telja.

Ætla að ergja mig á amstri dagsins og gef svo skýrslu síðar, kveðja, Sámur
15. febrúar 2007 klukkan 07:20
Sámur
Engin athugasemd
14febrúar

dagur að kveldi komin...........

Fór í bæinn(tilneyddur í borg óttans) en ekki samt erindaleysu.  Prófaði að reisa nýja fellihýsið, það er æði.

Á erfitt með að sofa eftir þessa stera sprautu, þarf að fá meira. 
Kæmi svo miklu meira í verk. 

En ef maður notar of mikla stera týnast á manni eystun, verða á stærð við rúsínur eða svo er sagt.  Góðir hlutir hafa galla!

Eftir nýust fréttum að dæma ætlar litli nýfæddi frændi að pluma sig vel, er í hitakassa með fullri þjónustu,  pabbi hans öfundar hann örugglega pínulítiðHlæjandi  .

950gr það er lítill frændi, pabbi hans er lítill, mamma hans er lítil, hann þurfti ekki á því að halda að vera fyrirburi.  Eiginlega fyrirbúri.  (Búri er siglfirðingur) mamman er frá sglufirði.

Gott í bili, góða nótt
14. febrúar 2007 klukkan 22:49
Sámur
Engin athugasemd
14febrúar

Ok, komin nýr dagur..........

Halló, elskurnar. Mátti ekki bera út blöðin eins og venjulega, fúlt, en vaknði samt á sama tíma og beið eftir elskunum mínum, meðan þær báru út!!!!!!!  

Fékk skilaboð um miðja nótt að kona bróður míns væri veik á meðgöngunni og væri í R-vík og barnið tekið með keisaraskurði, um tveim mán fyrir tímann, en allt í lagi með alla.

En tökum upp léttara hjal,Hlæjandi styttist í vorið og brúnin léttist á öllum.  Matarverð á að lækka um mánaðamótinHissaHlæjandi.  

Farfuglarnir fara að sjást í næsta mánuði og svo yfirtekur múkkinn allt, skítandi og gargandi.  Jibbí..... meira seinna....
14. febrúar 2007 klukkan 09:06
Sámur
2 athugasemdir
13febrúar

jæja, fyrsta bloggið mitt

Þetta byrjar ekki vel, unglingurinn minn skilar sér ekki heim.
En er ekki í fyrsta skipti, veit með hverjum hún er á rúntinum og löggan stoppar bílinn og skutlar unglingnumSaklaus heim til pabba og mömmu. 'Eg held við foreldrar verðum að líta okkur nær.  Hvað er að gerast, löglegum útivistartíma líkur klukkan 22:00.
En það má lögreglan á Akranesi eiga, að hún er lipur að pikka upp óþæga unglinga. 

En Það voru barðir unglingar og einhver orðrómur var um dópuppgjör á bryggjunni! 

Var hjá lækni og fékk tvær hrossasprautur í bak og mjöðm, orðinn gamalt drasl.
orðið gott í kvöld og býð góða nóttSkömmustulegur

13. febrúar 2007 klukkan 23:07
Sámur
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Atburðarteljari

Gagnasafn